Spegillinn

Kjaraviðræður, Úkraínustríðið og málefni flóttafólks í ESB

3. janúar 2024

Samhljómur og bjartsýni ríkir um gerð kjarasamnings SA og breiðfylkingar landssambanda ASÍ. Ætlunin er semja til langs tíma og þannig innistæða fyrir því - segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins. Arnar Björnsson fréttamaður ræddi við hana og Ragnar Þór Ingólfsson formann VR eftir fundinn í dag. Ragnar segir stjórnvöld þurfi fara gefa út yfirlýsingar um þau ætli taka þátt - annars vinna samninganefnda ekki til neins.

Þegar horft er yfir nýliðið ár virðist einhvers konar pattstaða komin upp í Úkraínustríðinu, sem hófst með innrás Rússa í Úkraínu fyrir tæpum tveimur árum. Boðaðar voru og lagt upp í hinar og þessar sóknir og gagnsóknir á víxl og fólk var drepið í tugþúsundatali. En það er ekki sjá neinar stórar breytingar hafi orðið á vígstöðunni frá því um síðustu áramót. Ævar Örn fékk Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing, til rýna í stöðuna og mögulegt framhald.

Vel á fjórða hundrað þúsund farand- og flóttamenn reyndu í fyrra komast inn fyrir landamæri Evrópusambandsins - álíka tölur hafa ekki sést síðan 2016. Deildar meiningar um meðferð og móttöku þessa fólks eiga líkindum eftir einkenna umræðuna í aðdraganda kosninganna til Evrópuþingsins í júní, ekki síst eftir sögulegt samkomulagt náðist fyrir nokkrum vikum um nýja skipan þessara mála innan Evrópusambandsins. Björn Malmquist fer yfir málið.

Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Frumflutt

3. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,