Spegillinn

Ópíóíðafíkn, leiðtogafundur, myndskeið af ofbeldi

Dauðsföll vegna ópíóíða gætu orðið fleiri í ár en nokkru sinni, segir Valgerður Rúnarsdóttir forstjóri Vogs. Ungt fólk leitar í auknum mæli á sjúkrahúsið vegna ópíóíða.

Á leiðtogafundi Evrópuráðsins í maí verður áhersla lögð á hvernig draga megi Rússa til ábyrgðar vegna Úkraínu, segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra. Fólk sem vinnur á stofnunum í grennd við fundarstaðinn, Hörpu, hefur verið beðið vinna heima þessa daga, segir Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn.

Guðrún Jónsdóttir þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði telur nauðsynlegt loka göngustígum á vorin þar sem aurbleyta er mikil.

Fyrsta vonarsvæði Íslands hefur verið valið. Vonarsvæði eru hafsvæði sem þykja einstök á heimsvísu og eru mikilvæg fyrir lífkerfi hafsins. Amanda Guðrún Bjarnadóttir ræddi við Evu Björk Káradóttur framkvæmdastjóra Hvalasafnsins á Húsavík.

____

Seinustu ár hefur neysla ópíóíða aukist hér á landi og samhliða því hefur dauðsföllum vegna þess fjölgað. Hátt í 240 manns leituðu sér aðstoðar hjá SÁÁ í fyrra, vegna ópíóíðafíknar og hafa aldrei verið fleiri. Bjarni Rúnarsson ræddi við Valgerði Rúnarsdóttir.

Ríkislögreglustjóri bað í dag fólk um láta vita af því verði það vart við ofbeldismyndbönd ungmenna í dreifingu á netinu. Alltaf berast annars lagið fréttir af því unglingar taki myndir eða myndskeið af slagsmálum eða jafnvel líkamsárásum og sendi svo sín á milli. María Rún Bjarnadóttir verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá Ríkislögreglustjóra segir þessar upptökur og deilingar séu áhyggjuefni jafnvel þó þetta jaðarhegðun hjá minnihluta ungs fólks. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við hana.

Joe Biden kom ekki mörgum á óvart þegar hann tilkynnti í morgun hann ætlaði gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningunum í Bandaríkjunum á næsta ári. Hann var nokkrum sinnum búinn gefa það í skyn í viðtölum en hin formlega tilkynning liggur fyrir og var birt á samfélagsmiðlum; myndskeið upp á þrjár mínútur og fjórar sekúndur. Ásgeir Tómasson segir frá.

Spegillinn 25. apríl 2023

Umsjónarmaður: Anna Kristín Jónsdóttir

Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Frumflutt

25. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,