Spegillinn

Sokkinn kafbátur, uppsagnir á Hólmavík, loftslagsmál og flóttafólk

Spegillinn 22. júní 2023

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn fréttaútsendingar: Sandra Silfá Ragnarsdóttir

Brak fannst í dag úr kafbátnum Titan, sem leitað hefur verið síðan á sunnudag. Hallgrímur Indriðason greinir leitinni.

Fimmtungur félaga í Verkalýðsfélagi Vestfirðinga missir vinnuna eftir uppsagnir í rækjuvinnslunni Hólmadrangi á Hólmavík. Urður Örlygsdóttir ræddi við Finnboga Sveinbjörnsson, formann félagsins, sem segir þetta mikið högg fyrir samfélagið.

Birta Flókadóttir, talsmaður samtakanna Hvalavina segir dýravelferðarsinna á Íslandi fagna löngu tímabæru banni við hvalveiðum í samtali við Ólöfu Rún Erlendsdóttur.

Karlmaður um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til nítjánda júlí, vegna rannsóknar lögreglu á andláti karlmanns í Hafnarfirði um helgina.

Kortavelta erlendra ferðamanna innanlands fyrstu fimm mánuði ársins hefur aukist töluvert miðað við síðasta ár. Þetta segir Jóhannes Þór Skúlason í viðtali við Rebekku Líf Ingadóttur.

Forsvarsmenn Dalvíkurbyggðar ætla ekki greiða lausnargjald fyrir gögn sem óprúttnir aðilar segjast hafa undir höndum eftir netárás var gerð á sveitarfélagið í maí. Ólöf Rún Erlendsdóttir segir frá.

----

Í uppgjöri Loftslagsráðs kveður við kunnuglegan tón: Stefna stjórnvalda í loftslagsmálum er ómarkviss og óljóst hvernig Ísland hyggst skuldbindingum sínum um samdrátt á losun gróðurhúsalofttegunda, um leið og allt stefnir í metár í notkun jarðefnaeldsneytis. Þetta hefur komið fram í öllum fyrri ársyfirlitum ráðsins, og er bætt í frekar en hitt og sagt færa þurfi stjórnsýslustig loftslagsmála upp á neyðarstig. Ævar Örn Jósepsson spurði Halldór Þorgeirsson, formann Loftslagsráðs, hvort þessi kunnuglegi tónn í uppgjörinu þýddi stjórnvöld hefðu ekki farið ráðgjöf þess hingað til.

Á fjórða tug hælisleitenda drukknuðu suður af Kanaríeyjum í vikunni. Spænskir strandgæslumenn voru nálægir en aðhöfðust ekkert. Ásgeir Tómasson segir frá.

Íbúar Óslóar stefna á vikulanga gleðidaga með gleðigöngu 1. júlí. Í fyrra lauk þessari hátíð með hryðjuverkaárás og morðum. Núna óttast borgarbúar sagan endurtaki sig. Samt er undirbúningur í fullum gangi í skugga hótana og áberandi andstöðu í samfélaginu. Gísli Kristjánsson segir frá.

Frumflutt

22. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,