Ný borgarstjórn í Reykjavík og sjálfbærniverkefni á Austurlandi
Oddvitum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks var tíðrætt um traustið sem ríkir milli þeirra þegar þau kynntu nýjan meirihluta í borgarstjórn í Viðey í morgun. Hildur Björnsdóttir, sem fer fyrir Sjálfstæðismönnum, verður borgarstjóri, Björg Magnúsdóttir Viðreisn verður forseti borgarstjórnar fyrsta árið og Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki formaður borgarráðs. Þau skipta svo um hlutverk eftir árið. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórnmálafræði segir sögulegt að sjálfstæðismenn leiði nýjan meirihluta í borginni.
Sjálfbærniverkefni, sem hófst við gerð Kárahnjúkavirkjunar og byggingu álvers Alcoa í Reyðarfirði er lokið, eftir tæplega 20 ára vöktun á áhrifum þessara framkvæmda á samfélag, atvinnulíf og umhverfi á Austurlandi. Austurbrú, sem fer með sameiginleg málefni sveitarfélaga á Austurlandi, hefur haft umsjón með verkefninu frá 2013 og hefur nú gefið út lokaskýrslu þar sem helstu niðurstöður þessarar vöktunar eru teknar saman.
Birt
27. maí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.