Spegillinn

Leiðtogafundur, Belarús, losunarheimildir, riða og SVEIT

Spegillinn 16. maí 2023

Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Leiðtogafundur Evrópuráðsins var settur í Hörpu fyrir nokkrum mínútum. Um fjörutíu þjóðarleiðtogar eru koma sér fyrir í Eldborg. Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti er ekki þeirra á meðal. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Birtu Björnsdóttur fréttakonu sem stödd var í Hörpu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sögðust á sameiginlegum blaðamannafundi í dag hafa komist samkomulagi um sérlausn fyrir Ísland vegna losunarheimilda í flugi. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra er ánægður með lausnina. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman.

Svetlana Tikanovskaya, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Belarús, er sérstakur gestur á leiðtogafundinum. Tikanovskaya kveðst mjög þakklát fyrir boðið og segir Belarús eiga heima í Evrópuráðinu. Það hefur ekki verið mögulegt til þessa, því þar eru dauðarefsingar enn við lýði.

Bændur í Miðfirði eru ekki sammála um hvort, eða hvenær, þeir vilja senda af bænum Syðri-Urriðaá í sláturhús, beiðni Matvælastofnunar. Héraðsdýralæknir segir mikilvægt aflífa dýrin sem fyrst til þess lágmarka smithættu. Ólöf Rún Erlendsdóttir fjallar um málið og ræðir við Daníel Haraldsson héraðsdýralækni.

SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, ætla stefna Eflingu fyrir félagsdóm. Þau vilja samningur Eflingar við SA bindi ekki hendur veitingastaða þegar kemur launagreiðslum. Rætt við Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóra SVEIT.

----

"Belarús hefur árum saman verið svartur blettur á Evrópu og útilokað frá aðild Evrópuráðinu, vegna þess þar er dauðarefsing enn við lýði," segir Svetlana Tikanovskaya, leiðtogi belarúsku stjórnarandstöðunnar. Hún berst fyrir því Belarús, sem til skamms tíma var nefnt Hvíta-Rússland hér á landi, verði lýðræðisríki og aðili Evrópuráðinu. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræddi við Tikanovskayu.

Katrín Jakobsdóttir og Ursula von der Leyen funduðu í Höfða og ræddu losunarheimildir, Úkraínu og leiðtogafundinn. Ragnhildur Thorlacius tók saman það helsta sem von der Leyen hafði segja á blaðamannafundi í framhaldinu.

Á Lidingö - hverfi rétt við miðborg Stokkhólms - er átta hæða íbúðarhús sem íbúarnir líta á sem rússneskt yfirráðasvæði. Eigandi húsanna er ósáttur og vill leigu fyrir húsið en rýma það ella. En það er ekki hlaupið því. Kári Gylfaon segir frá.

Frumflutt

16. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,