Spegillinn

Auðlindin okkar og norrænt samstarf

Spegillinn, 17. janúar 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir.

Ágreiningur um veiðigjald og hvernig megi hámarka hag samfélagsins af sjávarútvegi verður áfram þrætuepli, mati Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem hefur tekið við sextíu bráðabirgðatillögum starfshópa og vonar þær skerpi sýn. Lokatillögur þeirra koma í maí.

Það kemur Kjartani Kjartanssyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar á óvart hversu víðtæk áhrif rafmagnsleysið á Suðurnesjum í gær hafði á alla innviði. Hann segir brýnt styrkja þá. Það varði jafnvel þjóðaröryggi. Alexander Kristjánsson tók saman.

Rannsókn lögreglu á hendur Skúla Tómasi Gunnlaugssyni, fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um hafa sett sjúklinga sína í tilefnislausar lífslokameðferðir, er lokið. Mál hans verður sent til héraðssaksóknara síðar í þessum mánuði. Hann er grunaður í sex málum. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá.

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann fyrir vörslu þúsunda mynda og myndbanda sem sýna barnaníð. Maðurinn hafði halað niður, skoðað eða dreift myndefninu sem meðal annars sýndi brot gegn mjög ungum börnum. Oddur Þórðarson tók saman.

Hitastig gæti sveiflast um rúm tuttugu stig á næstu dögum. Tíu stiga hita og mikilli rigningu er spáð á sunnanverðu landinu á föstudaginn og Veðurstofa íhugar gefa út viðvaranir vegna hláku segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur. Pétur Magnússon tók saman.

-------------

Kvótakerfi verður enn við lýði, en meðal þess sem lagt er til í sextíu tillögum starfshópa Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um Auðlindina okkar, sem líklegt er verði umdeilt er tillaga um hækkað veiðigjald, og breytingar á byggðakvóta og 5,3 prósenta kerfisins svokallaða sem og auka gagnsæi í eignarhaldi og rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Bjarni Rúnarsson ræddi við Svandísi um tillögurnar.

Norðurlönd - Afl til friðar er yfirskrift formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni sem hófst um áramótin. Hún er hinn opinberi samstarfsvettvangur stjórnvalda á Norðurlöndum. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Guðmund Inga Guðbrandsson, samstarfsráðherra Norðurlanda og Karen Ellemann framkvæmdastjóra ráðherranefndarinnar.

Frumflutt

17. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,