Spegillinn

Launagreiðslur til Grindvíkinga, þjónustumiðstöð, Úkraína

17. nóvember 2023

Á ríkisstjórnarfundi í dag var samþykkt leggja fram frumvarp um tímabundnar launagreiðslur til Grindvíkinga. Gert er ráð fyrir heildargreiðslur geti numið allt frá einum einum og hálfum milljarði á mánuði. Reiknað er með greiðslunum út febrúar. Linda Blöndal ræddi við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykjfjörð Gylfadóttur fjármáalráðherra og Guðmund Inga Guðbrandsson félagsmálaráðherra.

Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, stjórnandi þjónustumiðstöðvar fyrir Grindvíkinga, í gamla tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík, hvetur þá til koma í miðstöðina, meðal annars í ráðgjöf hjá Vinnumálastofnun sem er komin með aðstöðu þar. Ragnhildur Thorlacius ræddi við hana.

Þjóðverjar áforma tvöfalda á næsta ári framlög sín til hermála í Úkraínu, úr fjórum milljörðum evra í átta. Nokkur árangur hefur orðið undanförnu í baráttunni við rússneska innrásarliðið í Kherson héraði. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Donald Trump er ekki eini stjórnmálamaðurinn frá New York-borg sem er undir smásjá alríkisyfirvalda í Bandaríkjunum þessa dagana. Borgarstjórinn Eric Adams er einnig í klandri. Rannsókn alríkislögreglu á meintu fjármálamisferli tengu framboði borgarstjórans fyrir tveimur árum er farin þrengja honum. Þorvarður Pálsson í New York sagði frá..

Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Markús Hjaltason.

Frumflutt

17. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,