• 00:00:05Ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum
  • 00:07:49"Fjölþátta aðgerð" Rússa gegn Finnum
  • 00:12:26Ris öfgamanna í Evrópu - Conrad

Spegillinn

Þvingaðar ófrjósemisaðgerðir, landarmæri Finna og Rússa og popúlismi

27. nóvember 2023

Í bandaríska blaðinu New York Times birtist um helgina grein um ófrjósemisaðgerðir á fötluðum konum - þar fullyrt enn væru gerðar slíkar aðgerðir í undantekingartilvikum, meðal annars á Íslandi, þrátt fyrir bann. Réttargæslumönnum fatlaðra berast árlega jafnaði þrjár til fjórar frásagnir af þvinguðum ófrjósemisaðgerðum fatlaðra kvenna segir Eiríkur Smith réttargæslumaður.

Finnar eru reiðubúnir loka síðustu landamærastöðinni á landamærum Finnlands og Rússlands ef straumur hælisleitenda frá Rússlandi verður ekki stöðvaður. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi forsætisráðherra Svíþjóðar og Finnlands í Helsinki í dag.

Um nær allan heim hefur gengi hægri öfgaflokka í kosningum vaxið. Þetta gerist víða í Evrópu og Bandaríkjunum og áhrifa þeirra gætir líka mjög hjá flokkum sem fyrir voru og hafa gert málflutning þeirra og málefni sínum eigin. Það reynist mörgum erfitt gangast við því þessir flokkar séu orðnir hluti af hinu pólitíska landslagi segir Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Jafnvel Geert Wilders formanni Frelsisflokksins kom kosningasigur flokksins í Hollandi í síðustu viku á óvart.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður Magnús Þorsteinn Magnússon.

Frumflutt

27. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,