• 00:00:00Áhrif langvarandi jarðhræringa á ferðaþjónustu
  • 00:09:10Bifröst og sameiningar
  • 00:14:40Óveður í Noregi

Spegillinn

Jarðhræringar og ferðaþjónusta, sameining háskóla og óveður í Noregi

2. febrúar 2024

Jarðskjálftahrinur og tíð eldsumbrot hafa einkennt síðustu fjögur ár á Reykjanesskaganum. Halda mætti þetta hefði veruleg áhrif á þá kviku og mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Engu síður stefnir í metár í farþegafjölda segir Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri, sem reiknar með 2.4 milljónum erlendra gesta til landsins.

Formlegar viðræður um sameiningu Háskólans á Bifröst og Háskólans á Akureyri hefjast í næstu viku. Í viðtali við Selmu Margréti Sverrisdóttur segir Bjarni Már Magnússon, forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, viðhorf starfsfólks almennt jákvætt og miklar breytingar á skólanum síðustu ár gefi góða reynslu fyrir komandi viðræður. Áhyggjur norðanmanna af sameiningunni séu óþarfar. Selma

Mikið óveður hefur gengið yfir norðanverðan Noreg síðasta sólarhring. Óttast er óveðurslægð komi upp Þrændalögum í nótt. Einn maður slasaðist alvarlega en annars er mikið tjón og víða á eigum manna. Veðurfræðingar segja viðlíka óveður komi aðeins tvisvar á öld jafnaði. Gísli Kristjánsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Frumflutt

2. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,