• 00:00:44Grindavík, Grindvíkingar og húsnæði
  • 00:08:04Hver er Nikky Haley? Og á hún séns?
  • 00:14:19Afsögn ráðherra vegna masterssvindls

Spegillinn

Hvert flytja Grindvíkingar? Hver er Nikki Haley og á hún séns? Enn einn ráðherraskandallinn í Noregi

Um eða yfir 1.200 heimili í Grindavík voru rýmd 10. nóvember og fyrir liggur fólk fær ekki flytja þangað aftur í bráð. En gangi áætlanir stjórnvalda eftir gera ráð fyrir fjöldi Grindvíkinga vilji koma sér fyrir í eigin húsnæði á næstunni, en hvar? Spegillinn ræddi við Grindvíkinginn Sverri Auðunsson. Hann er í bæjarstjórn Grindavíkur og er nýtekinn við formennsku í Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Kosið verður til forseta í Bandaríkjunum 5. nóvember og í dag fara fram forkosningar hjá Repúblíkönum í New Hampshire, einu smæsta og fámennasta ríki Bandaríkjanna. Þar býr aðeins tæp 1,5 milljón manna en niðurstaðan í New Hampshire hefur sögulega gefið góða hugmynd um hver hlýtur lokum útnefningu flokksins. Kjósendur geta valið á milli tveggja frambjóðenda, Trumps og Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóra Suður-Karólínu og sendiherra gagnvart Sameinuðu þjóðunum. En hver er Nikki Haley og á hún einhvern möguleika á verða forseti?

Enn einn ráðherrann í ríkisstjórn Noregs hefur orðið segja af sér vegna gamalla mistaka. Nýr ráðherra vísindarannsókna og æðri menntunar var kynntur í morgun eftir fyrri ráðherra játaði á sig ritstuld við lögfræðipróf. Núna eru sex ráðherrar farnir og sjöundi ráðherrann er í nauðvörn halda sínu embætti.

Frumflutt

23. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,