Spegillinn

Viðbrögð við stýrivaxtahækkun, leigumarkaður og EES samningurinn

Spegillinn 24. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Sturlun - segir Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins um þrettándu stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð í 8,75%. Anna Hrefna Ingimundardóttir, hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins telur afleit áhrif hækkunarinnar komi jafnvel ekki fram fyrr en eftir nokkur ár.

Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja neyðarástand ríki í efnahagsmálum og ríkisstjórnin þurfi bregðast við stýrivaxtahækkun Seðlabankans með tafarlausum aðgerðum. Höskuldur Kári Schram tók saman. Kristrún Frostadóttir, (S), Sigmar Guðmundsson (V), Ásthildur Lóa Þórsdóttir (F).

Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í máli Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings. Hún er ákærð fyrir hafa orðið sjúklingi bana á geðdeild Landspítala við Hringbraut í ágúst fyrir tveimur árum. Hún neitar sök. Birgir Þór Harðarson sagði frá.

Rúmlega tvö þúsund hafa sótt um alþjóðlega vernd hér á landi frá áramótum, fleiri en á sama tíma í fyrra sem var metár. Engar vísbendingar eru um heilu flugvélarnar af umsækjendum um vernd. Brynjólfur Þór Guðmundsson tók saman. Heyrist í Bergþóri Ólasyni (M) af þingi.

Grænlendingar eru ósáttir við rannsókn ekki enn hafin á svokallaðri lykkjuherferð Dana á Grænlandi. Átta mánuðir eru síðan Danir lofuðu skipa nefnd um málið. Róbert Jóhannsson sagði frá. Muté B. Egede formaður landsstjórnarinnar segir aðgerðaleysið til skaða.

-----------

Um þrjú þúsund eru á biðlista eftir leiguíbúð hjá Bjargi sem hefur á fimm árum byggt um þúsund íbúðir. Sérfræðingur hjá ASÍ bendir líka á í mörg þúsund íbúðir í Reykjavík séu í skammtímaleigu og sveitarfélög ættu geta haft meiri áhrif á hvernig húsnæði ráðstafað.

Staðan á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið er góð og það er mikill vilji til framkvæmd hans gangi sem best, segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir utanríkisráðherra, sem sat í dag fund ráðherraráðs EES ríkjanna með fulltrúum Evrópusambandsins, í Brussel. Björn Malmquist ræddi við hana í Brussel.

Frönskum flugfélögum er bannað bjóða upp á áætlunarferðir til staða sem hægt er komast til með járnbrautarlestum á skemmri tíma en tveimur og hálfri klukkustund. Þetta er liður í áætlun franskra stjórnvalda um draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Frumflutt

24. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,