Spegillinn

Eldflaugum rignir yfir Ísreael og heilbrigðiskerfið á Gaza hrynur

16. október 2023

Vígasveitir Hamas-samtakanna hafa varpað fjölda eldflauga á Tel Aviv og Jerúsalem síðustu klukkustundir. Samtökin segja árásirnar svar þeirra við árásum Ísraela á saklausa borgara.

Þó nokkrir bjuggu í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík sem kviknaði í síðdegis. Einn var fluttur á sjúkrahús. Maður sem bjó í húsinu hljóp út þegar hann heyrði í brunabjöllu.

Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar segir Agnesi M. Sigurðardóttur ekki hafa verið með umboð til víkja Gunnari Sigurjónssyni úr embætti sóknarprests við Digraneskirkju. Nefndin fellst ekki á biskup geti verið ráðinn með ráðningarsamningi.

Ég mun vanda mig eins vel og ég mögulega get, segir nýr fjármálaráðherra um framhald á sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, það forgangsverkefni.

Miklar breytingar voru gerðar á norsku ríkisstjórninni í dag. Helsta ástæðan fyrir breytingunum er slakt gengi Verkamannaflokksins í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Þrír ráðherrar hverfa úr ríkisstjórninni.

Launaþjófnaður frá aðfluttu og ungu launafólki hleypur á hundruðum milljóna króna hér á landi á hverju ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ.

-------------

Sameinuðu þjóðirnar segja heilbrigðiskerfið á Gazasvæðinu hrynja fyrir augum heimsins. Hundruð tonna af hjálpargögnum bíða við landamæri Egyptalands og Gaza.

Ofbeldisgáttin 112.is varð til í covidfaraldrinum þegar erfitt var nálgast upplýsingar í eigin persónu og yfirvöld hér líkt og víða annars staðar höfðu áhyggjur af vaxandi heimilisofbeldi og fólk vissi ekki hvert hægt væri leita til aðstoð. Eygló Harðardóttir er verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra sem hefur unnið með Neyðarlínunni gáttinni.

Undanfarin ár hafa verið annasöm hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Hver stóratburðurinn rekið annan. En hvernig fylgjast Almannavarnir með með breytingum í náttúrunni, til búa sig undir það sem verða vill. Björn Oddsson er fagstjóri hjá Almannavörnum

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir.

Frumflutt

16. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,