• 00:00:00Heilsa
  • 00:00:20Staðan á Landspítala
  • 00:07:41Vesturbakkinn
  • 00:13:32Farvegur Hítarár
  • 00:19:21Kveðja

Spegillinn

Vont orðið verra, Vesturbakkinn og hagsmunirnir við Hítará

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, vonar komið vendipunkti í þessari umræðu. Heilbrigðiskerfið hafi verið vanfjármagnað í lengri tíma og í því samhengi nefnir hún skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítalann sem kom út fyrir rúmu ári. Þar hafi verið bent á lausatök og úrræðaleysi, yfirsýn skorti og fjármagnaða heildaraðgerðaáætlun.

Það vita færri - en þó allir sem vilja - staðan á hernumdum Vesturbakkanum er líka skelfileg þótt hún til allrar hamingju fjarri því jafn slæm og á Gaza. ­Þar halda Ísraelar áfram ræna landi Palestínumanna sem Ísraelum, sem hernámsaðilum, ber þó skýr lagaleg skylda til verja. Þvert á móti leggjast þar allir á eitt, Ísraelsher, ísraelsk stjórnvöld og svo landræningjarnir sjálfir, bæði þeir um það bil 700.000 sem fyrir eru og þeir sem hyggja á nýtt landrán

Allt frá því gríðarstór skriða féll í Hítará árið 2018 hefur verið rætt um hvort tilefni til endurheimta fyrri farveg árinnar. Skriðan er farartálmi fyrir laxa á leið heim á hrygningarstöðvarnar og nýi farvegurinn er torfær fyrir laxinn. Kostnaðurinn við grafa gegnum skriðuna gæti hlaupið á hundruðum milljóna en fyrir landeigendur í dalnum eru talsverðir hagsmunir í húfi.

Birt

6. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,