• 00:00:00Kynning
  • 00:00:15UNRWA og stuðningur Íslands
  • 00:08:37Ástand versnar í Miðausturlöndum
  • 00:13:19Héraðslækningar
  • 00:19:43Kveðja

Spegillinn

Gaza, Miðausturlönd og héraðslækningar

29. janúar 2024

Daginn eftir Alþjóðadómstóllinn í Haag ákvað taka til efnislegrar meðferðar kæru Suður-Afríku á hendur Ísraelsríki fyrir brot á alþjóðalögum um þjóðarmorð sökuðu Ísraelsmenn tólf af um það bil 30.000 starfsmönnum Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna við Palestínu um aðild hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael 7. október síðastliðinn. Í kjölfarið ákváðu nokkur ríki, þar á meðal Ísland, frysta greiðslur til stofnunarinnar. Rætt er við Svein Rúnar Hauksson, lækni og stjórnarmann í Félaginu Ísland-Palestína, um þessa atburði.

Sérfræðingar í málefnum Miðausturlanda eru margir uggandi yfir því ástandið eigi eftir versna enn frekar eftir þrír bandarískir hermenn féllu í drónaárás á bækistöðvar þeirra í Jórdaníu í gær. Íranar eru sakaðir um hafa staðið á bak við hana. Þeir segjast hvergi hafa komið nærri. Ásgeir Tómasson segir frá.

Stefnt er innleiðingu nýrrar sérnámsleiðar í læknisfræði, héraðslækninga það eru lækningar í dreifbýli. Héraðslækningar verða þá undirsérgrein heimilislækninga. Eyjólfur Þorkelsson læknir sem stýrði málstofu um héraðslækningar á læknadögum segir þörfina fyrir þessa sérhæfingu mikla. Ásta Hlín Magnúsdóttir ræðir við hann.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

29. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,