Spegillinn

Varnargrðar við Svartsengi, ónóg þjónusta við heilabilaða, útrýmingarhætta hvítmygluosta

Meðan beðið er eftir næsta eldgosi við Svartsengi, sem jarðeðlisfræðingar búast við gæti jafnvel orðið í næstu viku, hamast menn við styrkja varnir og koma í veg fyrir frekara tjón á innviðum. Ari Guðmundsson verkfræðingur fer fyrir þeirri vinnu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Ara.

Hvorki heilabiluðum aðstandendum þeirra býðst viðunandi þjónusta á Norðurlandi. Þetta segja talsmenn Sólblómsins, félags aðstandenda heilabilaðra á Akureyri, sem sendu bæjarstjórn ákall um úrbætur á dögunum. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá og talaði við Olgu Ásrúnu Stefánsdóttur, félaga í Sólblóminu.

Þau ótíðindi bárust heimsbyggðinni á dögunum, dagar Camembert, Brie- og annarra hvítmygluosta yrðu mögulega brátt taldir. Ævar Örn Jósepsson sagði frá og talaði við Garðar Frey Vilhjálmsson, mjólkurfræðing og ostasérfræðing í Búðardal.

Frumflutt

23. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,