Spegillinn

Zelensky i Ósló, COP 28 og orðhákurinn Rudy Giuliani

Vladimir Zelensky Úkraínuforseti átti á miðvikudag fund með öllum forsætisráðherrum Norðurlandanna. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd og átti einnig einkafund með forsetanum. Gísli Kristjánsson, útsendari Spegilsins, var á staðnum og ræddi við Katrínu.

Nær 200 aðildarríki Sameinuðu þjóðanna náðu í morgun samkomulagi á 28. loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 28, sem haldin var í olíuríkinu Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, undir lok heitasta árs í sögu veðurmælinga. Forseti ráðstefnunnar, Al Jaber soldán og framkvæmdastjóri ríkisolíufyrirtækis Dúbaí, sagði þetta tímamótasamþykkt, enda væri hún fyrsta sinnar tegundar, þar sem minnst er á jarðefnaeldsneyti yfirhöfuð. Helga Barðadóttir, formaður íslensku sendinefndarinnar í Dúbaí, og Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, taka bæði undir þetta, hvort með sínum hætti. Ævar Örn Jósepsson tók saman.

Rudy Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trumps, stendur við fullyrðingar sínar um mæðgur sem störfuðu á kjörstað í Georgíuríki í forsetakosningunum í Bandaríkjunum fyrir þremur árum hafi reynt hnekkja úrslitunum með svindli. Hann hefur verið sakfelldur fyrir orð sín. Réttarhöld standa yfir í Washingtonborg þar sem ákveða á skaðabætur sem hann þarf greiða mæðgunum. Árni Tómasson segir frá.

Frumflutt

13. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,