• 00:00:00Kynning
  • 00:00:19Fjármögnun björgunarsveita
  • 00:06:41Skortur á vinnuafli á Ítalíu
  • 00:11:48Loftslagsmýtur I
  • 00:19:11Kveðja

Spegillinn

Björgun og flugeldar, vinnuafl á Ítalíu og loftslagsmýtur

27. desember 2023

93 þrjár björgunarsveitir eru starfandi á Íslandi. Samtals taka um 4.500 sjálfboðaliðar virkan þátt í starfi sveitanna og eru tilbúin svara kallinu þegar þörf er á. En þótt björgunarsveitarfólk í sjálfboðavinnu þá kostar það sitt reka sveitirnar, nánar til tekið um tvo milljarða króna á ári, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar; landssamtaka björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hann um fjármögnun sveitanna.

Stöðugt berast af því fréttir stjórnvöld á Ítalíu reyni með öllum ráðum - og sumum vafasömum - stöðva straum flóttafólks til landsins. Giorgia Meloni forsætisráðherra hét því fyrir þingkosningarnar í september í fyrra beita sjóhernum til koma í veg fyrir hælisleitendur frá Norður-Afríku næðu til landsins. Á sama tima glíma ítalskir vinnuveitendur við viðvarandi skort á vinnuafli. Ásgeir Tómasson segir frá.

Mikill einhugur ríkir um það í heimi veður-, umhverfis- og loftslagsvísinda, loftslag Jarðar hafi hlýnað óeðlilega mikið frá því iðnvæðing heimsins hófst fyrir alvöru á fyrri hluta nítjándu aldar; hlýnunin af mannavöldum og hana þurfi stöðva með öllum ráðum. En þótt einhugurinn mikill meðal loftslagsfræðinga er hann ekki algjör, og utan vísindaheimsins eru þeir ófáir sem telja sig vita betur en samanlagður sérfræðingaherinn á þessu sviði. Á vefnum Loftslag.is finna lista yfir helstu rök þeirra sem efast eða hreinlega aftaka með öllu ráðandi kenningar um hlýnun Jarðar og afleiðingar þeirra. Ævar Örn Jósepsson fékk Elínu Björk Jónasdóttur veðurfræðing og sérfræðing í loftslagsmálum hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, til renna yfir listann, sem skiptist í þrjá meginflokka.

Frumflutt

27. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,