Spegillinn

Þorskstofninn vex hægt, MS hissa á brenndum fernum, Trump ákærður

Spegillinn 9. Júní 2023

Umsjón: Ásgeir Tómasson

Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Nýliðun er slök í mjög mörgum sjávarnyjategundum, segir Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. Þorskstofninn er þó hægt vaxandi og ýsustofninn stendur vel. Benedikt Sigurðsson talaði við hann.

Margrét Gísladóttir, talsmaður Mjólkursamsölunnar, segir fréttir af óendurunnum fernum hafa komið sér á óvart. Fyrirtækið harmi mjög hvernig fór og þau hafi treyst verkferlum.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps fer fram á við Skipulagsstofnun fresta ákvörðun um landnotkun vegna uppsetningar vindorkugarðs í Búrfellslundi um allt 10 ár. Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri segir nærumhverfið ekki njóta ávinnings af virkjuninni. Sigrún Þuríður Runólfsdóttir talaði við hann.

Stríðandi fylkingar í Súdan hafa samþykkt sólarhrings vopnahlé frá og með morgundeginum. Ástandið í landinu er slæmt og farið bera á skorti á aðföngum í höfuðborginni Khartoum og í Darfur-héraði. Ástrós Signýardóttir sagði frá.

Héraðssaksóknari hefur fellt niður kæru á hendur Vítalíu Lazarevu. Hún var sökuð um hafa reynt kúga út úr þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Jóhannessyni.

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, kemur fyrir alríkisdómstól í Flórída þar sem honum verður birt ákæra. Hún hefur enn ekki verið opinberuð en er sögð vera í sjö liðum, þar á meðal um brot á lögum um njósnir. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Það stórsér á trjám og garðagróðri á Suðvesturlandi eftir kaldan og hretviðrasaman maí. Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur telur þó ótímabært fella þau tré sem verst urðu úti. Ævar Örn Jósepsson ræddi við hann.

Frumflutt

9. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,