Spegillinn

Aðbúnaður á vöggustofum, ópíóíðafaraldur, veiðitímabil rjúpu í haust.

06.10.2023

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir stjórnvöld geri margt til bregðast við ópíóíðafaraldrinum en mættu gera betur. Fjölga þurfi plássum í afeitrun til stytta biðtíma sem er á sjöunda mánuð. Urður Örlygsdóttir ræddi við hann.

Umhverfisáðherra hefur staðfest veiðitímabil rjúpu verði frá 20. október til 21. nóvember í ár. Heimilt verður stunda veiðarnar allan daginn frá föstudegi til þriðjudags. Ásta Hlín Magnúsdóttir talaði við Áka Ármann Jónsson, formann Skotvíss.

Íranska baráttukonan Narges Mohammadi fær friðarverðlaun Nóbels í ár. Hún situr fangelsuð í heimalandi sínu eftir áralanga baráttu fyrir réttindum kvenna og mannréttindum almennt. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Ung börn voru tjóðruð í rúmum á vöggustofunni Suðurborg samkvæmt ótúgefinni bók Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings. Móðir sást örsjaldan á vöggustofunni. Aldrei faðir. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Guðjón. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir í viðtali við Arnar Björnssonað bætur hljóti koma til skoðunar til þeirra sem dvöldu á vöggustofum í Reykjavík á seinni hluta síðustu aldar. Einnig var rætt við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra

Á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP 28 sem haldin verður í nóvember þarf byggja aftur upp trú almennings á því þjóðir jarðar séu tilbúnar takast á við ógnina sem felst í loftslagsbreytingum. Þetta segir Halldór Þorgeirsson, formaður loftslagsráðs, í viðtali við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur.

Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, gefur kost á sér til endurkjörs í kosnin gum í desember. Þorgils Jónsson sagði frá.

Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Frumflutt

6. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,