• 00:00:33Hjúkrunarfræðingur nýkomin frá Gaza
  • 00:05:20Katrín og Bjarni um greiðslur til UNRAW
  • 00:13:12Imran Khan fékk tíu ára dóm

Spegillinn

Íslenskur hjúkrunarfræðingur á Gaza, Imran Khan dæmdur í fangelsi á ný

Fjölmargir þeirra sem leita á sjúkrahús í Rafah missa útlim, sögn Elínar Oddsdóttur skurðhjúkrunarfræðings sem er nýkomin frá Gaza. Hún hefur starfað þar á vegum Alþjóðaráðs Rauða krossins. Alvarleg brunasár eru algeng. Allir sjúkrahúsgangar eru fullir af fólki sem hreinlega býr þar því það hefur á engan stað fara, segir hún.

Rætt er við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktssonar utanríkisráðherra um ákvörðun Bjarna um frysta greiðslur til UNRAW á meðan rannsakað er hvort nokkrir starfsmenn hjálparsamtakanna hafi átt þátt í hryðjuverkaárás á Ísrael í október.

Imran Khan, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir hafa ljóstrað upp um ríkisleyndarmál. Hann afplánar þegar þriggja ára dóm fyrir spillingu og á á annað hundrað ákærur yfir höfði sér.

Frumflutt

30. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,