Spegillinn

Efling úr SGS, Heilsuvera, svelt hjúkrunarheimili, skólamál og Erdogan

Spegillinn 11. maí 2023

Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórnandi fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Félagar í Eflingu samþykktu í dag félagið segði sig úr Starfsgreinasambandinu. Fimm prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni og sjötíu prósent þeirra samþykktu úrsögn. Formaður Eflingar fagnar niðurstöðunni og formaður Starfsgreinasambandsins segir hana ekki koma á óvart.

Faðir langveikrar stúlku gagnrýnir hafa misst aðgang Heilsuveru hjá dóttur sinni eftir hún varð sextán ára. Hún er ekki fær um sækja sjálf um rafræn skilríki og stendur þar af leiðandi réttindalaus.

Fjöldi sveitarfélaga hefur gefist upp á reka hjúkrunarheimili fyrir ríkið og hafa mörg þeirra skilað rekstrinum til þurfa ekki borga tugi milljóna með honum á hverju ári.

Starfsfólk Landspítala er hætt sérstakar viðbótargreiðslur tengdar covid faraldrinum. Starfsfólk bráðamóttöku spítalans fær þó greiðslur í maí.

Lífslíkur ómenntaðra eru talsvert lægri en þeirra sem hafa háskólamenntun. Þetta kemur fram í nýlegum tölum Hagstofunnar. Lífslíkur ómenntaðra kvenna hafa lækkað mest frá heimsfaraldri.

-----

Félagar í Eflingu samþykktu í dag félagið myndi segja sig úr Starfsgreinasambandinu. Tæplega 70 prósent þeirra sem greiddu atkvæði samþykktu úrsögnina. Einungis 5 prósent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Rætt er við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, og Vilhjálm Birgisson, formann SGS.

Á vormánuðum skipaði mennta- og barnamálaráðherra stýrihóp um eflingu framhaldsskóla. hans frumkvæði er hafið samtal um sameiningu Verkmenntaskólans og Menntaskólans á Akureyri, Kvennaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Sund, Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum og Keilis, og svo Flensborgar og Tækniskólans. Þessi vinna er í fullum gangi og skýrslu um kosti og galla á skila fyrir lok mánaðar. Sýnist sitt hverjum eins og komið hefur fram í fréttum, gagnrýnisraddir verið nokkuð háværar. Af hálfu ráðuneytisins hefur meðal annars verið vísað til þess efla þurfi verk- og starfsnám og auka farsæld barna og ungmenna. Hildur Ingvarsdóttir skólameistari í Tækniskólanum fagnar því sem gert er til efla starfsnám.

Áform Receps Tayyips Erdogans, forseta Tyrklands, um lengja tuttugu ára valdatíma sinn um fimm ár minnsta kosti virðast vera renna út í sandinn. Samkvæmt skoðanakönnun sem tyrkneska rannsókna- og ráðgjafarfyrirtækið Konda birtir í dag mælist fylgi hans fyrir forsetakosningarnar á sunnudag 43,7 prósent. Helsti keppinautur hans, Kemal.

Frumflutt

11. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,