Spegillinn

Seinni hálfleikur á þingi ASÍ, skjalamál og funhiti á Spáni

Innviðaráðherra segir viðbúið finna verði nýtt húsnæði fyrir allt 3 þúsund hælisleitendur á næstu misserum. Hann mælti í dag fyrir frumvarpi um hægt verði nota húsnæði sem ekki er ætlað til búsetu.

Guðmundur Felix Grétarsson er á sterkum sterakúr til geta haldið handleggjunum. Líkaminn gerði sig líklegan til hafna útlimunum sem hann fékk grædda á sig fyrir tveimur árum.

Þjóðskjalavörður segir enga hættu á aðgengi almennings og fræðafólks gögnum Borgarskjalasafns versni við flutning þeirra yfir í Þjóðskjalasafnið.

Yfir fimmtíu hitamet hafa fallið á Spáni síðustu sólarhringa. Óvenju heitt er á Íberíuskaga miðað við árstíma.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta er öruggt með sæti á EM á næsta ári.

-----

Seinni hluti ársþings ASÍ hófst í morgun. Fyrri hluti þingsins í október endaði í upplausn þar sem fulltrúar gengu út af þinginu og tveir frambjóðendur til forseta ASÍ drógu framboð sitt til baka á seinustu stundu. Mikil átök voru í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Kristján Þórður Snæbjarnarson tók við sem forseti ASÍ í ágúst en hann hyggst ekki gefa kost á sér áfram og lætur hann af embætti þingi loknu. Á morgun verður kosið í forystu sambandsins og miðstjórn. Bjarni Rúnarsson ræðir við Kristján Þórð.

Meirihluti borgarstjórnar ákvað á dögunum Borgarskjalasafni yrði lokað og Þjóðskjalasafni falinn allur safnkostur þess og framtíðarstarfsemi. Í þessari viku ákvað meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs svo fylgja þessu fordæmi. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, segir lög kveða á um það sveitarfélaganna ákveða, hvort þau varðveiti sín skjöl sjálf eða feli Þjóðskjalasafninu það verkefni. Þar eru þegar varðveittir einir 45 hillukílómetrar af gögnum. Héraðsskjalasöfn landsins geyma um 20 hillukílómetra til viðbótar og þar af er um helmingurinn, 10 hillukílómetrar, varðveittur á Borgarskjalasafninu. Hrefna segir Þjóðskjalasafnið vel fært um taka við þeim. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrefnu.

Íbúum á sunnanverðu landinu hnykkti við, mörgum hverjum, þegar þeir litu út í morgun og sáu alhvíta jörð. Á snjómyndum á Facebook mátti sjá þykkt lag á bílum, útigrillum og trjám og runnum sem voru byrjuð bruma. Einn birti mynd af snjóhrúgu og velti fyrir sér hvort vetrardekkin hans lægju þar undir. Smálægð sem fór yfir landið í gær og nótt olli ofankomunni, sem ekki hefur mælst jafn mikil á þessum árstíma síðan árið 1999. Á vef Veðurstofunnar sagði í hugleiðingu veðurfræðings í morgun snjókoma eða slydda væri á sunnanverðu landinu með takmörkuðu eða lélegu skyggni og

Frumflutt

27. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,