• 00:00:08ESB um Ísrael/Hamas
  • 00:05:42Fangelsin og fangarnir
  • 00:14:44Aðlaðandi landsbyggð

Spegillinn

Ástandið á Gaza, Fangelsismál í ólestri, Norræna ungmennaráðið

8. desember 2023

Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins gagnrýnir harðlega framferði Ísraelshers á Gaza. Sprengjuherferðin orðin með hinum umfangsmestu í sögunni og eyðileggingin í borgum á svæðinu sambærileg ef ekki meiri en í Þýskalandi í síðari heimsstyrjöldinni. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um tafarlaust vopnahlé á Gaza. Bandaríkjamenn ætla ekki styðja það. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Ísland er eina Norðurlandaþjóðin án opinberrar stefnu í málefnum fanga og fangelsa. Slík srefna er forsenda raunverulegra og nauðsylegra umbóta í málaflokknum, segir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi.

Meðal aðgerða sem grípa þarf til svo landsbyggðin verði aðlaðandi fyrir ungt fólk er bæta almenningssamgöngur og húsnæðismál og auka tækifæri til menntunar í samræmi við atvinnulíf. Þetta er mat Norræna ungmennaráðsins. Amanda Guðrún Bjarnadóttir sagði frá og talaði við Selmu Dís Hauksdóttur sem á sæti í ráðinu.

Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknuimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.

Frumflutt

8. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,