Spegillinn

Grindavík, fjarskiptaöryggi við umheiminn, Hútar og ökklabönd á ofsækjendur kvenna

Grindavík er hættulegur staður og verður það áfram næstu mánuði og líklega ár. Um þetta eru flestir jarðvísindamenn landsins sammála. Viðvarandi skjálftavirkni og hætta á fyrirvaralitlum eldgosum, gamlar sprungur sem hafa gliðnað og dýpkað og nýjar sprungur sem eru jafnvel ósýnilegar þar til einhverjum verður á stíga fæti á örþunnt jarðlagið sem hylur þær gera bæinn í raun óbyggilegan eins og er, og illmögulegt er spá fyrir um það, hvenær þetta breytist til hins betra. Ákall Grindvíkinga eftir aðgerðum stjórnvalda til tryggja þeim öruggt húsnæði og forða þeim frá gjaldþroti vegna tvöfalds húsnæðiskostnaðar fer hækkandi eftir þetta endanlega fyrir í kjölfar gossins í bænum 14. janúar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræðir við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra.

Samningaviðræður Íslendinga um aðkomu nýju öryggisfjarskiptakerfi Evrópusambandsins hefjast innan skamms. Með þessu stendur til tryggja aðgengi, til dæmis samskiptum við útlönd og netþjónustu ef innviðir á borð við sæstrengi rofna eða verða fyrir skemmdum. Gerðist það í dag myndi íslenskt samfélag mestu detta úr sambandi við umheiminn. Björn Malmquist tók pistilinn saman.

Nokkur stór skipafélög eru tímabundið hætt láta kaupskip sín sigla um hið hernaðarlega mikilvæga Bab el Mandeb sund, inn á Rauðahaf, um Súezskurð og til Evrópu eftir vígamenn húta í Jemen hófu ráðast á þau með flugskeytum og drónum. Þeir hafa lýst yfir stuðningi við Hamas samtökin á Gaza í baráttu þeirra við Ísraelsher og heitið því stöðva öll skip sem þeir telja sigli með vörur um Rauðahaf til Ísraels. En hverjir eru Hútar? Ásgeir Tómasson segir frá.

Í Noregi stendur til rýmka heimildir lögreglu til láta þá sem ítrekað rjúfa nálgunarbann bera öklaband og takmarka þannig ferðafrelsi þeirra. Þetta er svokallaður fyrirbyggjandi neyðarhnappur. Krafan um beita þessu úrræði hefur verið háværi í Noregi eftir tíð morð og ofbeldi í nánum samböndum í upphafi þessa árs. Nýjar heimildir til lögreglu eiga vera tilbúnar fyrir vorið. Gísli Kristjánsson segir frá.

Frumflutt

18. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,