Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýju mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu sem birt var síðdegis. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, Veðurstofustjóri, og Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvár, greindu frá úttektinni og næstu skrefum.
Ósigur Viktors Orbans í kosningunum í Ungverjalandi um þarsíðustu helgi var ofarlega í huga leiðtoga stjórnmálaflokka á hægri væng evrópskra stjórnmála, sem söfnuðust saman í Mílanó á laugardaginn, til hvetja sitt fólk til dáða fyrir komandi kosningar víða í Evrópu. Sama dag hittust leiðtogar á vinstri vængnum í Barcelona þar sem umræðan snerist að miklu leyti um Donald Trump Bandaríkjaforseta, án þess að hann væri nefndur á nafn.
Birt
21. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.