Spegillinn

NOVIS í vanda, strandveiðar í uppnámi, flóttafólk og hamfarahlýnun

Spegillinn 8. júní 2023

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Hermannsdóttir

Um fimm þúsund og sex hundruð Íslendingar eru með samning við vátryggingafélagið NOVIS í Slóvakíu. Farið verður fram á það fyrir slóvenskum dómstólum félaginu verði skipuð slitastjórn. Benedikt Sigurðsson segir frá.

Kunnugleg staða er komin upp í strandveiðum og útlit fyrir leyfilegur heildarafli dugi ekki til ljúka tímabilinu. Ágúst Ólafsson ræddi við Örn Pálsson, talsmann smábátaeigenda.

Reyna á til þrautar samkomulagi um samræmda stefnu Evrópusambandsins í málefnum hælisleitenda, á fundi dómsmála- og innanríkisráðherra sambandsins.

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ segir af og frá verkalýðshreyfingin ábyrg fyrir mikilli verðbólgu og vísar gagnrýni seðlabankastjóra til föðurhúsanna.

Börn í Brúarásskóla sem töpuðu næstum 700 þúsund króna ferðasjóði þegar Niceair hætti starfsemi fengu óvænta styrki og skaðann bættan mestu. Rúnar Snær Reynisson ræðir við Ásgrím Inga Arngrímsson skólasatjóra.

---

Reynt er til þrautar samkomulagi um samræmda stefnu Evrópusambandsins í málefnum hælisleitenda, á fundi dómsmála- og innanríkisráðherra aðildaríkja ESB í Luxemborg. Tillögurnar sem lagðar hafa verið fram ganga út á öll ESB ríkin séu skyldug til leggja sitt af mörkum, en einstök ríki geti keypt sig frá því taka á móti flóttafólki. Svíar, sem fara með formennsku í ráðherraráði ESB, hafa lagt mikla áherslu á komast niðurstöðu í dag, en málið er umdeild og samningum um það var ekki lokið þegar ráðherrafundurinn hófst í morgun. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel.

Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir og formaður Félags lækna gegn umhverfisvá, segir yfirstandandi hlýnun Jarðar af mannavöldum - það vísindaleg staðreynd sem ekki þurfi ræða frekar. Þess í stað þurfi grípa til tafarlausra aðgerða, ef forða eigi mannkyninu frá mestu hörmungum sem yfir það hafa dunið. Í grein sinni á vef Landverndar segir hann það álit margra lækna ef lífríki Jarðar væri sjúklingur yrði hann metinn í bráðri lífshættu, myndi þurfa róttækar aðgerðir með innlögn á gjörgæslu í afeitrun og kröftuga meðferð. En í hverju ætti meðferð felast?

Viðvörun vegna loftmengunar er í gildi í tuttugu ríkjum í Bandaríkjunum, allt frá Missouri í vestri til Massachusetts í austri og Virginíu í suðri. Hún hefur í dag verið einna svæsnust í Fíladelfíu í Pennsylvaníu. Menguninni valda hundruð gróður- og skógarelda í Kanada,

Frumflutt

8. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,