Spegillinn

Uppsagnir hjá 3X á Ísafirði, óbragð af vatni á Akranesi, skógareldar

Spegillinn 18. ágúst 2023

Umsjón: Ásgeir Tómasson

Tæknimaður: Kormákur Marðarson

Stj?+orn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Öllum 27 starfsmönnum Skagans 3X á Ísafirði hefur verið sagt upp og starfsstöðinni verður lokað. Þungbærar fréttir, segir Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri á Ísafirði, í viðtali við Alexander Kristjánsson

Jóhannes Sævar Rúnarsson, forstjóri Strætó, er sannfærður um innleiða þurfi gjaldtöku fyrir akstur í miðborg Reykjavíkur til draga úr mengun og jafnvel banna umferð bíla sem menga mikið. Ævar Örn Jósepsson talaði við hann.

Akurnesingar kvarta yfir óbragði af neysluvatni. Fyrstu niðurstöður úr sýnum sem tekin voru í dreifikerfi Veitna í gær benda til þess óhætt drekka vatnið. Ísak Regal ræddi við Jón Trausta Kárason, forstöðumann vatns- og fráveitu hjá fyrirtækinu, og Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur, íbúa á Skaganum.

Slökkviliði tókst aðeins vinna á bálinu á Tenerife á Spáni í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í borginni Kelowna í Kanada og öllum íbúum bæjarins Yellowknife gert flýja skógarelda sem brenna á yfir þúsund stöðum í landinu. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Breski hjúkrunarfræðingurinn Lucy Letby hefur verið sakfelld fyrir myrða sjö ungabörn og fyrir reyna myrða sex til viðbótar. Ísak Regal tók saman.

Ákvörðun alþjóðaskáksambandsins, FIDE, um meina trans konum þátttöku í kvennamótum er skrítin og röng, mati Gunnars Björnssonar, forseta Skáksambands Íslands. Ari Páll Karlsson ræddi við hann.

Það er mikil áskorun utan um notkun og misnotkun á gervigreind í skólastarfi. Það gildir um allan heim en ekkert þýðir banna segir Katrín Regína Frímannsdóttir, gæðastjóri Háskóla Íslands. Kötturinn er sloppinn úr sekknum.

Um ellefu þúsund hafa skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun, á Menningarnótt. Margir hlaupa til góðs og safna áheitum fyrir málstað sem stendur þeim nærri. Hlauparar hafa þegar safnað yfir hundrað fimmtíu og fjórum milljónum króna.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,