Spegillinn

22.9.2023 Kynþroska strokulaxar, Landsbankinn farinn úr Austurstræti,

Flestir strokulaxarnir sem Hafrannsóknarstofnun hefur greint, voru kynþroska. Þetta er óvenjulegt, en í laxeldi er kynþroska laxa seinkað til þess auka gæði fiskanna. Valur Grettisson ræddi við Guðna Guðbergsson, sviðsstjóra hjá Hafrannsóknastofnun.

Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá danska karlmenn í tengslum við umfangsmikið smygl á hundrað fimmtíu og sjö kílóum af hassi. Þeir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu úti fyrir Garðskaga í lok júní.

Málaflokkur fatlaðra hefur verið vanfjármagnaður um 42 milljarða króna á fjögurra ára tímabili. Formaður Borgarráðs Reykjavíkurborgar segir það ekki ganga ríki og sveitarfélög séu í reiptogi um svo viðkvæman málaflokk. Valur Grettisson ræddi við Einar Þorsteinsson formann borgarráðs Reykjavíkur.

Starfsemi Landsbankans í höfuðstöðvunum í Austurstræti í Reykjavík er lokið. Þar var skellt í lás í síðasta sinn klukkan fjögur í dag. Gréta Sigríður Einarsdóttir sagði frá og talaði við Jósep Gíslason, starfsmann bankans, Helga Teit Helgason framkvæmdastjóra einstaklingssviðs og viðskiptavininn Sigríði.

minnsta kosti þrír voru handteknir í aðgerð sérsveitar ríkislögreglustjóra í Flúðaseli í Reykjavík í dag.

Ekki hefur gengið sem skyldi finna réttu leiðina til virkja rödd almennings við breytingar á stjórnarskrá dómi Jóns Ólafssonar, prófessors í heimspeki. Hann telur hæpið þrjár greinargerðir lögfræðinga sem birtust í síðustu viku verði upphaf gefandi samtali.

Hagstofan hefur gefið út áður óbirt manntal. Það var tekið 1981 og er 42 ára gamalt. Ragnhildur Thorlacius tók saman.

Flóð færast sífellt í aukana í Miami í Flórída og víðar í suðurhlutanum. Vísindamenn telja þriðjungur ríkisins verði orðinn umflotinn vatni um næstu aldamót. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Frumflutt

22. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,