Spegillinn

Ástandið á Gaza, íslenskur jarðvegur, þjóðtrú á undanhaldi

3. nóvember 2023

Antony Blinken, utanríkmisráðherra Bandaríkjanna, lagði ráðamönnum Í Ísrael fylgja alþjóðlegum mannúðarlögum í stríði þeirra við Hamas hryðjuverkasamtökin og heimila neyðaraðstoð til íbúa Gazasvæðisins. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Fjallað var um áhrif þeirrar miklu hlýnunar sem orðin er á norðurslóðum á íslenskan jarðveg. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Bjarna Diðrik Sigurðsson skógvistfræðing og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Þjóðtrú er enn rík í sumum Íslendingum; sérstaklega konum, eldra fólki og íbúum á landsbyggðinni, en efasemdir hafa samt aukist verulega hin síðari ár, og raunar margfaldast í sumum tilfellum. Brynjólfur Þór Guðmundsson ræddi þetta málefni við Terry Gunnell þjóðfræðing.

Umsjónarmaður: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

3. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,