Spegillinn

Kennurum hótað og seðlabankastjóri um verðbólgu og lán

Spegillinn, 7. júní 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.

Foreldrar ganga oft mjög hart fram gagnvart kennurum ef börn þeirra ekki einkunnir sem duga til inngöngu í vinsælustu framhaldsskólana; leita jafnvel til lögfræðinga. Anna Lilja Þórisdótti ræddi við Valdimar Víðisson, skólastjóra í Öldutúnsskóla í Hafnarfiðri.

Um áttatíu vörur eru í svokallaðri Verðgátt, sem opnuð var á netinu í dag. Þar getur fólk getur fylgst með matvöruverði í þremur stærstu verslunum landsins. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sagði frá og talaði við Magnús Sigurbjörnsson hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Akstur verður bannaður í göngugötunni á Akureyri næsta sumar. Árum saman hefur verið tekist á um bílaumferð á um tæplega 200 metra stubb af Hafnarstræti. Ari Páll Karlsson tók saman og ræddi við Hildu Jönu Gísladóttur (S) bæjarfulltrúa.

Vísindamenn í Noregi hafa hætt rannsókn á heyrn hvala -- eftir einn hvalanna drukknaði. Alexander Kristjánsson gerði pistilinn.

Búast við talsverðri úrkomu á landinu öllu í kvöld og nótt. Drjúg rigning verður á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum. Ástrós Signýjardóttir tók saman og ræddi við Óla Þór Árnason.

-------

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir atvinnurekendur geti ekki vikið sér undan ábyrgð á kjarasamningum. Þeir verði gera samninga sem þeir geti staðið við án þess velta hækkunum beint út í verðlag. Benedikt Sigurðsson ræddi við hann. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman .

Flugfarþegar sem eiga leið um Heathrow flugvöll í Lundúnum um helgar í sumar mega búast við töfum og truflunum vegna verkfalls öryggisvarða. Þeir leggja niður störf í samtals þrjátíu og einn sólarhring. Ásgeir Tómasson tók saman. Wayne King, svæðisstjóri Unite stéttarfélags öryggisvarðanna, félagsins, Simon Calder, sérfræðingur í ferðamálum.

Á fimmtán árum um 21 þúsund komið til VIRK vegna heilsubrests sem gerir þeim erfitt ráða við vinnu. Sumir koma oftar en einu sinni en flestum hefur tekist komast aftur til starfa. Umsækjendum hefur fjölgað stöðugt segir Vigdís Jónsdóttir forstjóri starfsendurhæfingarsjóðsins. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hana.

Frumflutt

7. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,