Samskipti við Bandaríkin, NATO og heilbrigðisþjónusta við heimilislausa
Sérfræðingur við íhaldssama hugveitu í Washington ráðleggur íslenskum stjórnvöldum að rækta áfram sambandið við embættismenn og stjórnmálamenn í Bandaríkjunum, en ekki endilega æðstu leiðtoga landsins. Hann telur að NATO lifi af ólgusjó.
Leiðtogafundur NATO-ríkjanna hefst í Ankara í Tyrklandi eftir helgi. Björn Malmquist verður þar og fer yfir hverju er við að búast.
Rétt þjónusta á réttum stað. Þetta er eitt af leiðarstefjum lýðheilsu- og heilbrigðisstefnu íslenskra stjórnvalda. En það vantar töluvert upp á að þetta sé haft að leiðarljósi í heilbrigðisþjónustu við fólk sem býr við heimilisleysi. Rætt við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar.
Birt
3. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.