• 00:00:00Kynning
  • 00:00:27Skipulagsstjóri Grindavíkurbæjar
  • 00:06:20Loftslagsmýtur II
  • 00:13:17Guðmundur Kári - LHS 3154b
  • 00:19:14Kveðja

Spegillinn

Eignir í Grindavík, loftslagsmýtur og fundur LHS 3154b

Á meðan jörð rís í Svartsengi og Grindvíkingar bíða sjálfsagt með öndina í hálsinum yfir því sem verða vill, standa margir þeirra frammi fyrir flóknum spurningum. Á ég og mitt fólk búa áfram í bænum okkar og þá hvar? Spegillinn ræddi við Atla Geir Júlíusson sviðsstjóra skipulags og umhverfissviðs Grindavíkurbæjar og spurði hvort það hefðu margir bæjarbúar sett sig í samband við bæinn og sagst vilja losna við húsið sitt og flytja burt.

Spegillinn skoðar áfram röksemdir þeirra sem efast um hlýnun Jarðar, orsakir hlýnunar og afleiðingar hennar.

Guðmundur Kári Stefánsson stjarneðlisfræðingur við Princeton háskóla í Bandaríkjunum leitar fjarreikistjörnum í rannsóknum sínum, meðal annars með aðstoð lífbeltisreiksistjörnuleitara. Hann og samstarfsfólk hans greindu nýverið frá mikilvægri uppgötvun sem þau gerðu. Spegillinn tók Guðmund Kára tali og fékk hann til segja frá uppgötvun LHS 3154b.

Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred.

Frumflutt

28. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,