Spegillinn

Gallað námslánakerfi, viðbrögð við PISA, flóð í Queensland

18, desember 2023

Í nýútkominni skýrslu um Menntasjóð námsmanna kemur fram lög sem sett voru um sjóðinn fyrir þremur árum hafi falið í sér umtalsverðar breytingar á námslánkerfinu. Sumar þeirra hafi komið námsmönnum vel, en aðrar síður, og nauðsynlegt breyta lögunum til markmið þeirra um jafna tækifæri fólks til náms náist. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Rakel Önnu Coulter, forseta Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Ekkert er vitað með vissu um hvort símanotkun, samskiptamiðlar, eða breytt barnæska frá því sem áður var eigi þátt í slakara gengi nemenda á PISA. Á þetta bendir Atli Harðarson prófessor á menntavísindasviði sem varar við því haupið verði upp til handa og fóta til gera breytingar á menntakerfinu vegna útkomu íslenskra nemenda í PISA. Ragnhildur THorlacius ræðir við Atla.

Þúsundir íbúa Queensland í norðausturhluta Ástralíu hafa orðið flýja heiman vegna gríðarlegrar rigningar síðustu dægrin. Sums staðar hefur rignt meira á einum sólarhring en í meðalári. Þeir sem eru á ferð utan dyra þurfa hafa varann á vegna krókódíla á sundi. Ásgeir Tómasson segir frá.

Frumflutt

18. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,