• 00:00:08Helmingur Gaza er í rúst
  • 00:05:56Palestína og Persaflóaríkin
  • 00:12:29Raforkuvandi Vestfirðinga

Spegillinn

Gaza, Palestína og Persaflóaríki, raforka á Vestfjörðum

31. janúar 2024

Meira en helmingur bygginga á Gaza hafa skemmst eða verið jafnaðar við jörðu frá því stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas braust út í haust. Nákvæmur samanburður á gervihnattarmyndum af landshlutanum 12. október til 29. janúar leiðir þetta í ljós, því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá á fréttavef sínum. Ásgeir Tómasson tók saman.

Algjört þrot blasir við UNRWA, flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna í Palestínu, ef nokkur lykilríki á Vesturlöndum frysta framlög sín til stofnunarinnar til langframa. Og þá spyrja margir: Hvar eru hin vellríku og öflugu Arabaríki við Persaflóann þegar á reynir? Rætt við Magnús Þorkel Bernharðsson.

Lítil orkuframleiðsla, takmörkuð flutningsgeta og annmarkar á dreifikerfi rafmagns gera Vestfirðingum erfitt fyrir taka þátt í boðuðum orkuskiptum landsins. Einn virkjanakostur sem gæti leyst stóran hluta vandans ylli jafnframt miklu raski í Vatnsfirði, þar sem hefur verið friðland í fimmtíu ár. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson umhverfis- og orkumálaráðherra, Elías Jónatansson, orkubússtjóra og Gísla Gíslason prófessor í vatnalíffræði.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Frumflutt

31. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,