Spegillinn

Strokulax, kapphlaup til tunglsins og breytingar á byggingarreglugerð

Spegillinn 30. ágúst 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar: Júlía Margrét Ingimarsdóttir

Óvenju mikið er af laxi við Ósá í Patreksfirði þar sem göt fundust á eldiskví í síðustu viku. Hvorki er þó hægt fullyrða hve margir fiskar sluppu hvort fiskar sem veiðst hafa í ám á norðvesturhorninu eru úr kvínni.

Lögreglunni bárust tilkynningar um 79 nauðganir fyrstu sex mánuði ársins. Börn voru næstum helmingur þolenda kynferðisbrota á tímabilinu. Stærstur hluti þeirra sem leita meðferðar við óæskilegum kynferðislegum hugsunum og hegðun í kringum börn, eru karlmenn á aldrinum 18-60 ára, segir Jóhanna Dagbjartsdóttir sálfræðingur. Karitas M. Bjarkadóttir talaði við hana.

Stærð og umgjörð bankakerfisins er ástæða þess vaxtamunur er meiri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndunum, mati Benedikts Gíslasonar formanns stjórnar Félags fjármálafyrirtækja. Hann segir metarður bankanna skili sér til neytenda. Pétur Magnússon tók saman.

Rekja tvö hundruð og þrettán andlát í fyrra til covid-19, samkvæmt ársskýrslu sóttvarnalæknis. Alls smituðust hundrað sjötíu og níu þúsund af kórónuveirunni í fyrra. Ekki hafa fleiri smitast af lekanda á einu ári í meira en þrjátíu ár. Valgerður Greta G. Gröndal sagði frá.

Íslenska óperan hefur sótt um einkaleyfi á vörumerkinu Íslenska þjóðaróperan á sama tíma og verið er undirbúa stofnun þjóðaróperu í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri segir þetta ekki gert til trufla það starf. Ásta Hlín Magnúsdóttir tók saman.

------------

Aðeins eitt af hverjum þremur skólabörnum í Úkraínu fær fulla kennslu í vetur. Meira en hálf milljón barna á flótta er ekki skráð í skóla. Ásgeir Tómasson sagði frá og heyrist í Reginu de Dominics, svæðisstjóra barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,

Margir hafa reynt við tungllendingar undanfarin misseri: Japanir, Ísraelar, Rússar og í síðustu viku lentu Indverjar ómönnuðu könnunarfari á suðurpóli tunglsins. Þar hefur enginn lent áður. Ragnhildur Thorlacius sagði frá kapphlaupinu til tungslins, heyrist í John. F. Kennedy.

Núgildandi byggingarreglugerð var sett fyrir ellefu árum. Hún er um 150 síður og hefur verið breytt árlega. Ingveldur Sæmundsdóttir leiðir stýrihóp sem settur var á fót í vor og vinnur heildarendurskoðun og einföldun á byggingarreglugerðinni. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Ingveldi.

Frumflutt

30. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,