Spegillinn

Afsögn Bjarna Benediktssonar og áhrif á ríkisstjórn

10. október 2023

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir afsögn fjármálaráðherra virðingarverð. Hún hafi óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina en milli þeirra ríki traust.

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur lýsir ánægju með fjármálaráðherra hafi ekki látið reyna á hæfi sitt í embætti fyrir dómstólum heldur frekar vikið. Ráðherrar sem yfirmenn framkvæmdavaldsins þurfi fylgja flóknu regluverki í sínum verkefnu og megi ekki hygla einni atvinnugrein eða frændfólki.

Hólmganga Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins segir formaður miðflokksins um afsögn fjármálaráðherra.

Stjórnvöld í Finnlandi segja einsýnt skemmdarverk hafi verið unnin á gasleiðslu sem liggur yfir Finnska flóa til Eistlands. Þau neita tjá sig um um hver hafi verið verki.

Í stríði milli Ísraels og Hamas, eins og í öðrum stríðum, eru það börn sem þjást mest, segir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Rafmagns- og vatnsleysi á Gaza lífshættulegt.

Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kári Guðmundsson. Stjórn fréttaútsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Frumflutt

10. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,