Geðheilsa Íslendingar, ný stjórn í Danmörku og símabann og boð í Svíþjóð
Ný og viðamikil fjölþjóðleg rannsókn sýnir að
þess að um 1,2 milljarðar karla, kvenna og barna séu með geðsjúkdóma eða geðraskanir af einhverju tagi nær tvöfalt fleiri en 1990. Geðræn vandamál eru algengari meðal kvenna en karla og þau leggist þungt á ungmenni. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir
ekkert af þessu koma á óvart og ríma ágætlega við þróunina hér.
Það tók næstum sjötíu daga að mynda nýja ríkisstjórn eftir kosningar í Danmörku og Mette Frederiksen, leiðtoga jafnaðarmanna og sitjandi forsætisráðherra, tókst það eftir töluvert þóf. Hún gæti orðið þaulsetnasti forsætisráðherra Dana frá því í seinna stríði.
Lýðheilsustofnun Svíþjóðar hefur gefið út nýjar leiðbeiningar til foreldra um símanotkun og skjátíma barna. Símar verða bannaðir í skólum þar í haust og fleiri lönd íhuga að setja sambærilegar reglur.
Birt
2. júní 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.