Spegillinn

Hvalveiðar, átök í ríkisstjórn og næringarráðleggingar

Fyrirvaralaust og ámælisvert, segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, um stöðvun hvalveiða út sumarið. Ríkið gæti verið bótaskylt standi ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra sem segir spurningu hvort atvinnugrein þar sem ekki hægt tryggja velferð dýra eigi sér framtíð. Óskiljanleg ákvörðun segir Árni Sverrisson, formaður skipstjórnarmanna.

er rétti tíminn fyrir ríkið til koma inn í húsnæðismarkaðinn dómi Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra sem kynnti í dag aukinn stuðning við íbúðabyggingu fyrir tekjulága og breytingar á hlutdeildarlánum.

Sonur Bandaríkjaforseta viðurkenndi í dag fyrir rétti hafa svikið undan skatti og ólöglega eign á skotvopni. Dómari í réttarhöldum yfir fyrrverandi forseta boðar þau hefjist síðsumars.

Skoðanir eru skiptar innan ríkisstjórnarinnar um ýmis mál, hvalveiðar og útlendingamálin bera hæst. Pólitík snýst um átök, segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra; stjórnarsamstarfið þó ekki hættu.

Fanney Lilja Harðardóttir sem setti flöskuskeyt á flot fyrir 14 árum segir gaman skeytið hafi ratað í hendur stelpu sem er jafngömul og hún var sjálf þegar hún sendi það af stað. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir tók saman.

Uppselt er á leik Íslands og Portúgals í fótbolta karla á Laugardalsvelli í kvöld. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður segir löngu fyrir leik hafi margir verið mættir og eftirvæntingin mikil ekki síst eftir því sjá stjörnur Portúgals eins og Christiano Ronaldo.

-------------------

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í morgun ákvörðun sína um stöðva veiðar á á langreyði til 31. ágúst. Niðurstaða fagráðs um velferð dýra var veiðiaðferðir samræmist ekki lögum. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir skiptar skoðanir innan ríkisstjórnarinnar um hvalveiðar og styður ekki stöðvun þeirra. Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness telur vegið fyrirvaralaust afkomu félagsmanna sinna sem hafi í fyrra haft góðar tekjur í hvalnum. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS telur meðalhófs hafi ekki verið gætt, ámælisvert stöðva veiðar degi áður en þær áttu hefjast á grundvelli álits fagráðsins þegar MAST hafi komist þeirri niðurstöðu veiðarnar brytu ekki í bága við lög.

Baunir, grænmeti og ávextir eiga vera aðaluppistaðan í næringu landsmanna, samkvæmt nýjum Norrænum næringarráðleggingum sem kynntar voru í dag. Íslendingar ættu ekki neyta meira en 350 gramma af rauðu kjöti á viku - en neyta um 560 gramma. Skera þyrf

Frumflutt

20. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,