• 00:00:00Kynning
  • 00:00:21Hvítabjörn felldur
  • 00:04:09Líbanon
  • 00:14:17Rafrettukóngar ákærðir fyrir sígarettusmygl
  • 00:18:33Kveðja

Spegillinn

Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga

Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en vill ekki gefa upp hverjir það voru sem felldu björnin en bæði lögreglumenn frá lögreglunni á Vestfjörðum og séraðgerðardeild Landhelgisgæslunnar voru á staðnum, lögreglumennirnir á björgunarbátnum Kobba Lák en sérðagerðardeildin um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Sigrúnu Ágústsdóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, um verklagið sem er viðhaft þegar hvítabjörn gengur á land á Íslandi.

Á fjórða tug létust og á fjórða þúsund særðust, þar af eru nær þrjú hundruð með lífshættulega áverka, þegar þúsundir símboða og talstöðva voru sprengdar í loft upp í Líbanon í gær og fyrradag. Talið er litlu magni af mjög öflugu sprengiefni hafi verið komið fyrir í tækjunum á einhverju stigi framleiðslunnar, og sprengibúnaðurinn svo virkjaður með því senda boð í tækin. Allt þykir benda til þess Ísraelar hafi verið verki, nánar tiltekið ísraelska leyniþjónustan Mossad. Vesturlandabúar búast flestir við því allt verði vitlaust í herbúðum Hezbollah, sem hyggi á skjótar og grimmilegar hefndir. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, sem þekkir vel til í Líbanon, segir það misskilning. Ævar Örn Jósepsson ræðir við hana.

Tveir karlmenn, sem báðir hafa hagnast vel á rafrettusölu til Íslendinga, hafa verið ákærðir fyrir eitt mesta sígarettusvindl Íslandssögunnar ásamt starfsmanni flutningafyrirtækis. Á árunum 2015 til 2018 eru athafnamennirnir tveir sagðir hafa flutt til landsins rúmlega 125 þúsund karton af sígarettum í gegnum félag án þess greitt væri tóbaksgjald af vörunum upp á rúmlega 740 milljónir. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Frumflutt

19. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir