Spegillinn

Hugvíkkandi efni, grænmetis skömmtun og rammaáætlun 5

Hundruð milljóna tjón varð í bruna fiskeldisfyrirtækis á Tálknafirði í morgun. Slökkvilið er enn störfum. Tveir slösuðust í brunanum.

Áhyggjur eru um verkföll Eflingar muni hafa áhrif á um 2000 manns á hjúkrunarheimilum á höfuðborgarsvæðinu, fáist ekki undanþága til afgreitt bensín fyrir starfsfólk.

Dómsmálaráðherra vill skoða hvort hægt nota hugvíkkandi efni til hjálpa afbrotamönnum sem glíma við geðræn vandamál og lögreglumönnum sem hafa orðið fyrir áfalli í starfi.

Breytt hegðun landsmanna eftir covid 19 faraldurinn gæti útskýrt hversu skæðar umgangspestir eru um þessar mundir. Þetta segir framkvæmdastjóri lækninga á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fimmta bólusetning vegna covid-19 er hafin

Verslanakeðjur í Bretlandi skammta grænmeti og ávexti vegna vöruskorts. Slæm tíð og veðurfar í suður Evrópu og Afríku hefur ollið uppskerutjóni á tómötum, paprikum og fleiri tegundum

-----

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra telur rétt skoða kosti þess nota hugvíkkandi efni til hjálpa föngum sem hafa lokið afplánun til aðlagast samfélaginu á og einnig til aðstoða þolendur í ofbeldismálum. Rannsóknir á hugvíkkandi efnum á borð við sveppi, LSD og MDMA benda til þess þau hafi jákvæð áhrif á geðsjúkdóma svo sem þunglyndi, fíkn og þrjáhyggju. Jón hefur viðraði þessar hugmyndir við Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar.

minnsta kosti fjórar verslanakeðjur í Bretlandi hafa gripið til þess ráðs skammta ákveðnar tegundir af ávöxtum og grænmeti vegna vöruskorts. Ástæðan er fyrst og fremst rakin til slæmra veðurskilyrða til ræktunar í Norður-Afríku og Suður-Evrópu, einkum suðurhluta Spánar, í haust og vetur. Asda, ein stærsta verslanakeðja landsins, sem rekur á sjöunda hundrað verslanir, reið á vaðið á þriðjudag og tilkynnti takmarka yrði kaup á tómötum, paprikum, agúrkum, salati í lausu og í pokum, spergilkáli, blómkáli og hindberjum við þrjár einingar á hvern viðskiptavin. Talsmaður Asda harmaði til þessa þyrfti koma, en keðjan glímdi við skort á ýmsum tegundum grænmetis og ávaxta eins og aðrir smásalar í landinu. Önnur keðja, Morrisons, tilkynnti síðdegis hún þyrfti skammta tómata, agúrkur, salat og paprikur frá næsta degi. Miðað var við hver viðskiptavinur gæti einungis keypt tvær einingar til þess sem flestir fengju eitthvað.

Vinna við undirbúning verndar- og orkunýtingaráætlunar stjórnvalda, sem í daglegu tali kallast rammaáætlun, hófst formlega 1999 eftir langan aðdraganda. Rammaáætlun er hugsuð sem lagarammi um orkubúskap Íslendinga og s

Frumflutt

23. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,