• 00:00:00Kynning
  • 00:00:26Aðfangadagur kosninga
  • 00:04:24Kynlegar kosningar
  • 00:11:37Kosningabaráttan á samfélagsmiðlum
  • 00:19:13Kveðja

Spegillinn

Kosningar í Bandaríkjunum og á Íslandi

Það fer ekki framhjá neinum á morgun verða haldnar forsetakosningar vestur í Bandaríkjunum. Þar takast þau á, Kamala Harris, frambjóðandi Demókrata, og Donald Trump, frambjóðandi Repúblikana. er innan við sólarhringur þar til fyrstu kjörstaðir verða opnaðir og enn er allt í járnum, varla tölfræðilega marktækur munur á frambjóðendunum, hvorki á landsvísu í hinum svokölluð sveifluríkjum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Björn Malmquist fréttamann, sem er í einu þessara ríkja, Pennsylvaníu.

Kynjamunur er ekkert nýtt í bandarískum stjórnmálum, þar sem konur hafa verið hallari undir Demókrata og karlarnir snoknari fyrir Repúblikana síðustu fjóra áratugi hið minnsta. En munurinn hefur aldrei verið jafnmikill og afgerandi og nú, og hefur raunar tvöfaldast á síðustu tuttugu og fimm árum ef marka niðurstöður skoðanakönnunar sem birt fyrir tveimur vikum eða svo. Samkvæmt henni munar heilum þrjátíu prósentustigum á fylgi Harris og Trumps meðal kvenna sem hyggjast nýta atkvæðisrétt sinn, Harris í vil, en hjá körlum er munurinn 12 prósentustig, Trump í hag. Þetta er talið geta ráðið úrslitum í hnífjöfnum kosningum. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Stjórnmálaflokkarnir geta ekki hagað sér eins og þeir vilja þegar þeir reyna til kjósenda á samfélagsmiðlum. Samfélagsmiðlarnir sjálfir hafa sett ákveðnar reglur sem flokkarnir verða virða og áhrifavaldar sem þiggja greiðslu frá stjórnmálaafli geta átt á hættu vera úthýst frá Tiktok. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Elfu Ýr Gylfadóttur framkvæmdastjóra fjölmiðlanefndar.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred.

Frumflutt

4. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

<