Spegillinn

Kvikuhlaup við Grindavík, saumafólk mótmælir, 100 tonn af graskerjum

Jarðskjálftahrina norðan við Grindavík í dag er merki um kvikuhlaup. Engin merki eru um gosóróa. Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir allt benda til þess virknin á 3-4 km dýpi. HS orka fer yfir viðbragðsáætlanir og Fannar Jónasson bæjarstjóri segir íbúafundur verður haldinn í Grindavík á fimmtudag klukkan 17:30.

Gaza er orðinn grafreitur þúsunda barna og hætta er á fleiri börn látist úr ofþornun. Þetta segir talsmaður Unicef í yfirlýsingu í dag.

Öryggismál og stríðsátök í heiminum eru mál málanna á þingi Norðurlandráðs í Noregi. Það segir sína sögu dynurinn frá mótmælendum sem styðja Palestínu fyrir utan þinghúsið yfirgnæfði næstum því málflutning innan dyra.

Til stendur þyngdarmörk sjúkraflugs hækkuð um 10-20 kg. Ekki er hægt flytja sjúklinga þyngri en 135 kg með sjúkraflugi.

100 tonn af graskerjum hafa verið flutt til landsins - til hrella saklausa borgara, börnum til skemmtunar.

Lögregla í Bangladess barðist í dag við starfsfólk í fataverksmiðjum sem lagði niður störf og krafðist þess mannsæmandi laun fyrir vinnu sína. Fólkið saumar meðal annars föt fyrir stórfyrirtækin H&M og Gap.

Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Kári Guðmundsson.

Frumflutt

31. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,