Spegillinn

Úrhelli fyrir austan, kynferðisafbrot, Trump ákærður eftir helgi

Spegillinn 31. mars 2023

Umsjón: Ásgeir Tómasson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn fréttaútsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Um 300 manns ekki fara heim til sín í nótt vegan rýminga á Austfjörðum. Á bilinu 70-80 snjóflóð hafa fallið þar síðustu daga. Mikil úrkoma hefur verið og spáð er rigningu fram yfir hádegi á morgun. Ásta Hlín Magnúsdóttir sgði frá og talaði við Minney Siguðardóttur ofanflóðasérfræðing hjá Veðurstofunni.

Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Brynjari Joensen Creed, rúmlega fimmtugum karlmanni, fyrir gróf kynferðisbrot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Bæturnar til þeirra voru jafnframt hækkaðar. Freyr Gígja Gunnarsson sagði frá.

Tvö tilfelli hafa komið upp í sumarbúðum fatlaðra í Reykjadal, þar sem efast er um öryggi skjólstæðinga hafi verið tryggt. Stella Sverrisdóttir, móðir fatlaðrar stúlku, er ósátt við forsvarsmenn búðanna eftir grunur kviknaði um dóttir hennar hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Valur Grettisson ræddi við hana.

Kjaraviðræður Kennarasambands Íslands og Samtaka íslenskra sveitarfélaga standa enn yfir. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins segir samflot með BSRB og BHM hafi gengið vel hvað varðar sameiginlega hagsmuni opinberra starfsmanna, en nokkrir þættir standi út af. Alma Ómarsdóttir talaði við hann.

Ár er í dag frá því Rússar hörfuðu frá bænum Bucha í Úkraínu. Þeir unnu þar hrikaleg grimmdarverk gegn íbúunum. Dagný Hulda Erlendsdóttir sagði frá.

Donald Trump verður birt ákæra í New York á þriðjudag, fyrstum fyrrverandi forsetum Bandaríkjanna. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Síðasta tölublað Fréttablaðsins kom út í morgun eftir 22 ára útgáfu. Hátt í hundrað manns misstu vinnuna. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Valgerði A. Jóhannsdóttur lektor um stöðuna á fjölmiðlamarkaði.

Tollvernd og upprunamerkingar matvæla voru efstar á baugi meðal fulltrúa bænda sem ræddu stöðu landbúnaðar og matvælaframleiðslu nýafstöðnu á Búnaðarþingi. Bjarni Rúnarsson ræddi við Gunnar Þorgeirsson, formann Bændasamtaka Íslands.

Frumflutt

31. mars 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,