Spegillinn

Ofnýtt einangrun, efnahagshorfur heimsins og villta vindmylluvestrið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var á Alþingi í dag sökuð um láta almenning bera allan kostnað vegna aukinnar verðbólgu. Stjórnarandstaðan krefst þess ríkisstjórnin taki ábyrgð.

Ísland verður eins og villta vestrið ef vindorka fellur utan rammaáætlunar, segir verkefnisstjóri Landverndar. Hann sakar hagsmunasamtök orkufyrirtækja um afvegaleiða umræðu um þessi mál.

Formaður lögmannafélagsins segir dómstólar beiti einangrun í gæsluvarðhaldsúrskurðum úr hófi fram. Breyta þurfi verklagi, lögum og kröfum um rökstuðning fyrir beita henni.

Blaðamannafélag Íslands tilkynnti í dag úrsögn sína úr Alþjóðasambandi blaðamanna. Formaður félagsins segir þetta eiga sér langan aðdraganda.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur efnahagshorfur í heiminum betri en spá sem birt var í haust gerði ráð fyrir. Þó er útlit fyrir samdrátt í Bretlandi á árinu.

-----

Einangrunarvist í fangelsum landsins er beitt úr hófi fram, mati mannréttindasamtakanna Amnesty International. Í nýrri skýrslu þeirra kemur fram á tíu ára tímabili frá 2012 til 2021 hafi 825 sætt einangrunarvist, þar af tíu börn á aldrinum 15 til 17 ára. Amnesty segir slíkt brot gegn banni við pyntingum.

Lagt er íslenskum stjórnvöldum standa við skuldbindingar sínar á sviði mannréttinda og meðal annars setja í forgang bannað verði börn sæti einangrun í gæsluvarðhaldi. Eins verði tekið fyrir einangrunarvist fólks með geðraskanir, andlegar eða líkamlegar fatlanir. Regluverk skorti til verndar þessum hópum. Amnesty krefst umbóta enda afar skaðlegt hversu óhóflega einangrunarvist er beitt hérlendis og hvetur til slíkt verði látið heyra til algerra undantekninga og vari stutt. Annað brot á alþjóðasamningum. Á tímabilinu 2012 til 2021 segir Amnesty 99 manns hafi sætt einangrun lengur en í 15 daga. Slíkt brot gegn banni við pyntingum.

Nánast undantekningalaust verða dómstólar við þeirri beiðni lögreglunnar sakborningar skuli sæta einangrun.

Amnesty beinir umbótatillögum sínum ýmsum stofnunum og samtökum íslenskum, þar á meðal dómsmálaráðuneytinu, fangelsismálayfirvöldum, dómurum, lögreglu og lögmönnum. Sigurður Örn Hilmarsson er formaður Lögmannafélags Íslands. da við skuldbindingar sínar á sviði mannréttinda og meðal annars setja í forgang bannað verði börn sæti einangrun í gæsluvarðhaldi. Eins verði tekið fyrir einangrunarvist fólks með geðraskanir, andlegar eða líkamlegar fatlanir. Regluverk skorti til verndar þessum hópum. Amnesty krefst umbóta enda afar skaðlegt hversu óhóflega einangrunarvist er beitt hérlendis

Frumflutt

31. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,