Spegillinn

Barist á Gaza, Norðmenn fúlsa við eldislaxi, nám í framhaldsskólum

1. desember 2023

Á annað hundrað Palestínumenn hafa látið lífið frá því vopnahlé Ísraelshers og Hamas samtakanna rann út í sandinn í morgun. Reynt er stríðandi fylkingar til fallast á leggja niður vopn af mannúðarástæðum. Ásgeir Tómasson tók saman.

Það stefnir í metár hjá laxeldismönnum i Noregi. Verð er í hæstum hæðum og fleiri laxar í kvíunum en nokkru sinni fyrr. En eldisfyrirtækin sæta meiri gagnrýni en áður og innanlandsmarkaður í Noregi er fallandi. Landsmenn fúlsa við eigin framleiðslu og segja hana bæði illa útlítandi og illa lyktandi. Gísli Kristjánsson sagði frá.

Námsbrautir framhaldsskóla eru orðnar svo ólíkar á milli skóla og kerfið svo ógagnsætt erfitt er fyrir nemendur setja saman nám til undirbúnings fyrir háskóla, samkvæmt greiningu Maríu Jónasdóttur, doktorsnema í menntavísindum. Nánast megi tala um krísuástand í sumum deildum Háskóla Íslands - hvernig eigi bregaðst við breyttum undirbúningi nemenda sem eru koma úr framhaldsskóla eftir styttingu. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Maríu.

Umsjón: Ásgeir Tómasson. Tæknimaður: Mark Eldred.

Frumflutt

1. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,