• 00:00:24Jólaverð og verðlagsapp ASÍ
  • 00:08:36Gemini gervigreind fyrir Spegilinn
  • 00:14:17Grýlubarnaþula

Spegillinn

Jólaverð, verðlags-app, gervigreind og Grýlubörn

22. desember 2023

Það er ekki ódýrt kaupa í matinn á Íslandi og sjaldan dýrara en í aðdraganda jóla. Verðlagseftirlit ASÍ fylgist grannt með verðlagningu helstu matvöruverslana allan ársins hring, eg gerir líka sérstaka jólakörfuverðkönnun í desember ár hvert, þar sem sérvaldar og jólalegar vörur eru tíndar saman. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Benjamín Julian, sviðsstjóra verðlagseftirlits ASÍ, um jólaverðið, verðlagskannanir og nýtt verðkönnunar-app fyrir neytendur, sem gerir fólki mögulegt gera verðsamanburð á milli verslana án þess flækjast á milli þeirra.

Google svipti nýverið hulunni af nýju gervigreindarlíkani. Það ber nafnið Gemini og er í þremur útgáfum, en öflugasta verður ekki gefin út fyrr en á næsta ári. sögn framleiðanda er það fært um sýna framsækna rökhugsun.Valgerður Gréta Gröndal segir frá.

Grýla hét tröllkerling leið og ljót, segir í kvæðinu, en hvað er svo sem marka það sem mennirnir segja um skessur og tröll? Það er altént ljóst töllkörlum hefur hvorki þótt hún leið ljót því hún á hátt í tvö hundruð afkvæmi með minnst fjórum körlum. Jórunn Sigurðardóttir þylur nöfn þeirra (flestra) í einni jólalegri runu.

Frumflutt

22. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,