Spegillinn

Sala TF SIF, Samfylking stærst flokka, búvörusamningar og votlendi

"Róttækar" og "afdrifaríkar" eru orðin sem forstjóri Landhelgisgæslunnar notaði í samskiptum við dómsmálaráðuneytið um nauðsynlegar niðurskurðarleiðir ef ekki fengjust frekari fjárheimildir. Meðal hugmynda voru sala flugvélar og varðskips.

Samfylkingin fær mest fylgi allra flokka í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup í fyrsta sinn síðan 2009 og mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn.

Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað í gær hækka gistináttagjald annarra sveitarfélaga í gistiskýlum borgarinnar. Um þriðjungur þeirra sem dvelja í skýlunum er frá öðrum sveitarfélögum.

Landbúnaðar- og matvælaráðherra stendur eigin sögn alls staðar frammi fyrir sömu áskorunum. Þar á meðal hvernig draga megi úr losun og gera landbúnað aðlaðandi fyrir ungt fólk þegar raunin er býlum fækkar.

Vladimír Pútín líkir innrásarstríði Rússa í Úkraínu við það þegar Sovétríkin hrintu innrás nasista í síðari heimsstyrjöld. Áttatíu ár eru í dag frá lokum orrustunnar við Stalíngrad.

Votlendissjóður er hættur selja kolefniseiningar til kolefnisjöfnunar en Landgræðslan gerir sér vonir um alþjóðleg vottun fáist á þetta verkefni fyrir árslok.

------------------------

Búvörusamningar þeir sem eru í gildi voru gerðir til tíu ára 2016. Í þeim er fjallað um stjórn á framleiðslu búvara og framlög til landbúnaðar. Um 18 milljörðum króna er ráðstafað til greinarinnar árlega. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir tækifæri til endurskoðunar gefist tvisvar á gildistíma samningsins. Í seinni endurskoðun hans, sem gerð verður á þessu ári, segir hún stefnt einföldun samningsins.

Ráðstefna Arctic Frontiers var haldin í Tromsö í Noregi vikuna 30. janúar til 3. febrúar. Um 900 manns sóttu ráðstefnuna, sem haldin var í skugga Úkraínustríðsins. Þar komu saman stjórnmálamenn, vísindamenn, fulltrúar staðbundinan samfélaga, þar á meðal frumbyggja, og leiðtogar fryirtækja og hagsmunaaðila á norðurslóðum til skrafs og ráðagerða. Rússar, sem gegndu formennsku í samtökunum til skamms tíma, voru ekki á staðnum en þó allt yfir og allt um kring.

Votlendissjóður hefur hætt sölu kolefniseininga til kolefnisjöfnunar og mun draga úr allri starfsemi þar til alþjóðleg vottun hefur fengist. Sjóðurinn hefur stundað sína endurheimt í samstarfi við Landgræðsluna hluta, en Landgræðslan stundar líka sína eigin votlendisendurheimt.

Spegillinn 2. febrúar 2023

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn Fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.

Frumflutt

2. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,