• 00:00:08Aðalmeðferð í skotárásarmáli
  • 00:05:20Grindavík - samfélag að tvístrast
  • 00:13:40Viðbrögð við kosningum í Rússlandi

Spegillinn

Réttarhöld v. skotárásar, Grindavík, kosningar í Rússlandi

18. mars 2024

Réttarhöld vegna skotárásar í Úlfarsárdal í nóvember á síðasta ári hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Árásin vakti bæði athygli og óhug en hana virðist mega rekja til hefndar fyrir rán. eini sem særðist í árásinni gaf þó lítið upp um mögulegar ástæður þess hann var skotinn og sagðist hvorki vita neitt muna. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.

Neyðarstigi almannavarna var lýst yfir þegar enn fór gjósa í Sundhnúksgígum og hefur um sex ferkílómetra hraun komið upp. Hrauntunga fór yfir Grindavíkurveg aðfaranótt sunnudags og önnur nálgast Suðurstrandarveg. Hættuleg gasmengun mældist við orkuverið í Svartsengi og það var rýmt fyrr í dag. Þá voru þar fimm störfum en þeir gátu snúið fljótlega aftur. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Grindavík segir óvissan sem Grindvíkingar hafa búið við lengi farin taka sinn toll, og hún upplifir ekki gos sem áhrifamikið sjónarspil. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hana.

Það fór eins og margan grunaði Vladimír Pútín sigraði með yfirburðum í forsetakosningunum í Rússlandi í gær. Pólitískir andstæðingar hans voru hvort sem er ýmist í fangelsi, flúnir úr landi eða gengnir á vit feðra sinna. Kjörstjórn tilkynnti í dag hann hefði fengið 87,28 prósenta fylgi. Mótframbjóðendur hans sem enginn man hvað heita fengu 4,31, 3,85 og 3,2 prósent. Ásgeir Tómasson segir frá.

Frumflutt

18. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,