Spegillinn

Vopnakaup ríkislögreglustjóra, reiðufé, lestarslys á Indlandi

Spegillinn 2. Júní 2013

Umsjón: Ásgeir Tómasson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Ríkislögreglustjóri keypti skotvopn og skotfæri fyrir 185 milljónir króna vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins. Annar búnaður kostaði 150 milljónir til viðbótar. Benedikt Sigurðsson ræddi við Runólf Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjón.

Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir jákvætt færri noti reiðufé í viðskiptum sínum þó hann vilji ekki notkun þess leggist alfarið af. Hins vegar eigi það eftir gerast einn daginn og annað taka við. Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við hann.

Óttast er tugir hafi látist í lestarslysi á Indlandi í dag. Minnst tvö hundruð slösuðust.

Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir karlmanni vegna rannsóknar á andláti konu á Selfossi í apríl.

Starfshópur á vegum félagsmálaráðherra vill skoðað verði hvort tilefni til þess láta eltihrella og þá sem ítrekað hafa rofið nálgunarbann til sæta rafrænu eftirliti. Starfshópurinn telur þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis ómarkvissa. Valur Grettisson sagði frá.

Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir félaga Rafiðnaðarsambandsins sem starfa hjá Landsneti hefst í næstu viku.

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir verður í eldlínunni með þýska liðinu Wolfsburg sem mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar í fótbolta á morgun. Sveindís segir pressan öll á Barcelona og hún ætli njóta þess spila á stærsta sviðinu. Björn Malmquist talaði við hana.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra vonast til þess afkoma ríkissjóðs á þessu ári verði betri en fram kom í fyrri efnahagsspám. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talaði við hann.

Atlantshafsbandlagið eykur þrýsting á Tyrki hleypa Svíum í Evrópusambandið. Ásgeir Tómasson sagði frá.

Þverfaglegur starfshópur starfar á vegum Umhverfisstofnunar með það leiðarljósi veita faglega ráðgjöf um áhrif umhverfis á heilsu fólks. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur, verkefnisstjóra hópsins.

Frumflutt

2. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,