Spegillinn

Ríkissjóður, hamfarir, málefni barna, sorphirða og ferðaþjónusta

Spegillinn 10.08. 2023

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Yfir fjögur þúsund manns hafa verið flutt brott frá flóðasvæðunum í Noregi. Miklar rýmingar standa yfir í bænum Hönefoss þar sem yfirborð árinnar Storelva hækkar hratt. Rætt er við Huldu Björk Jóhannsdóttur kennara í Hönefoss

Havaí-eyjar hafa verið lýstar hamfarasvæði eftir miklir gróðureldar blossuðu þar upp í gær. Tugir eru látnir og margra er saknað.

Fjármálaráðherra segir á komandi vetri eigi eftir reyna á framlengingu kjarasamninga og á samtal við vinnumarkaðinn um hversu mikið menn eru tilbúnir leggja á sig til halda aftur af verðbólgunni. Rætt við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra.

Viðbragðstími lögreglu á Norðurlandi vestra styttist verulega með tilkomu fyrstu mönnuðu lögreglustöðvarinnar á Hvammstanga. Rætt við Unni Valborgu Hilmarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings.

Sterkar vísbendingar eru um staða barna með taugaþroskaraskanir víða alvarleg í íslenskum grunnskólum og dæmi um skólarnir vísi börnum frá eða sinni ekki menntun þeirra. Rætt við Salvöru Nordal.

Sorphirða á höfuðborgarsvæðinu hefur tafist og óánægja ríkir meðal íbúa. Deildarstjóri sorphirðu segir tafirnar vera vegna sumarleyfa og búnaðar sem ekki henti nýju flokkunarkerfi. Rætt við Atla Ómarsson, deildarstjóra sorphirðu hjá Reykjavíkurborg.

-------

minnsta kosti 36 íbúar bæjarins Lahaina á eyjunni Maui á Havaíeyjum eru látnir vegna mikilla gróðurelda. Þeir kviknuðu á þriðjudag, en efldust til muna í gær vegna hvassviðris af völdum fellibylsins Dóru sem myndaðist á Kyrrahafi um mánaðamótin. Ásgeir Tómasson tók saman.

Sterkar vísbendingar eru um staða barna með taugaþroskaraskanir víða alvarleg í íslenskum grunnskólum og dæmi um skólarnir vísi börnum frá eða sinni ekki menntun þeirra sem skyldi. Þetta er á meðal þess sem tilraunaverkefni um réttindagæslu barna hefur leitt í ljós. Ævar Örn Jósepsson ræddi þetta og ráðstefnu um loftslagsréttlæti og réttindi barna við Salvöru Nordal, umboðsmann barna,

Í vetur er stefnt beinu millilandaflugi til Akureyrar og í sumar hefur verið flogið til Sviss og Hollands frá Akureyri. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta og þolmörk og dreifingu ferðamennskunnar við Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista, og Önnu Dóru Sæþórsdóttur, prófessor í ferðamálafræði.

Frumflutt

10. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Spegillinn

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,